fimmtudagur, febrúar 15, 2007

...what a way to make a livin'

Hvað varð eiginlega af vikunni ? Það er föstudagur á morgun og mér finnst vinnuvikan vera rétt byrjuð. Er bara ekki alveg að átta mig á því að helgin er rétt handan við hornið. Það liggur við að mér finnist ég mæta í vinnu kl 8 á mánudegi og þegar ég er búin er klukkan orðin 4 föstudegi, dagarnir renna bara allir saman í eitt og ég veit bara ekkert hvað verður af þeim. Ætli þetta sé ekki rútínuvinnan sem geri þetta, maður er alltaf að gera það sama svo hver dagur verður öðrum líkari. Fannst þetta ekki vera svona þegar ég var í skóla, kannski af því að það biðu manns skýrslur og önnur leiðinleg verkefni svo að tíminn virtist aldrei ætla líða.... eða hvað?

Annars hefur þessi vika verið alveg sérlega annasöm hér í vinnunni. Það eru greinilega bara allir með hor í nös eða eitthvað þaðan af skemmtilegra. Flensan er í hámarki, eða það vona ég allavega, svo það skortir ekki verkefni og vil ég bara biðja ykkur þarna úti að fara vel með ykkur og ekki verða lasin svo að ég þurfi ekki að vinna meira.... please.

Átakið "belgurinn burt" gengur ekki rass... Held ég sé búin að fara einu sinni í ræktina síðan ég skrifaði hér síðast inn, meiri auminginn. Kenni bara vinnunni um það... er það ekki ágætis afsökun? Þóttist ætla drífa mig bara fyrir vinnu á morgun til að bæta mætinguna yfir vikuna eitthvað en hell no..... er ekki að fara. Er í vinnunni núna að klára vaktina mína og sjiiittt hvað ég er þreytt. Lappirnar eru alveg búnar og ég líka, það eina sem ég get hugsað mér núna er að fara sofa... Verst að það er ekki einhver gæji heima til að gefa mér gott táslu- og baknudd, það væri
nice, ummmm sweet.... úff... ætla ekki að svekkja mig meira á því.

Over and out
JK