mánudagur, mars 19, 2007

Grilluð!

Var alveg grilluð í dag. Og ekkert medium-rare neitt, heldur alveg Well Done.
Málið var að ég var að halda fyrirlestur í skólanum, taldi mig nú vera nokkuð vel undirbúna eftir lestur helgarinnar, en boy ó boy... I was wrong!
Fyrirlesturinn sjálfur gekk nú ekkert illa og held ég að ég hafi komið efninu frá mér á mannamáli, en svo komu spurningarnar.... og þá voru góð ráð dýr. Gat ómögulega fundið upp á einhverju gáfulegum svörum til kennarans og undirbúningurinn var fljótur að fara fyrir bí, lagði nefnilega áherslu á aaaallt önnur atriðið en spurt var um. En hvað um það, þetta er búið og gert og er ég bara fegin að þetta er að baki. Nú eru allavega engin leiðindaverkefni yfir hausnum á mér núna.
Það er gott!

Ný vinnuvika tekin við með tilheyrandi stuði. Ætla bara að njóta þess að vera til, vera dugleg að skreppa í ræktina (þetta er allt koma í þeim málunum) og bara hafa það gott :) Vona að þið gerið það líka.

Góðar stundir!