Kvefið farið...
...og gott betur en það.
Slapp við það að verða eitthvað mikið lasin, eyddi einni helgi í almennan slappleika og volæði (er svo góður starfsmaður að ég tek ekkert frí úr vinnu sko...) Helv... kvefið hafði þó af mér eitt Sálarball sem var búið að stefna á að fara í langann tíma. Gerði mitt besta og mætti í fyrirpartý fyrir ballið en orkaði ekki einu sinni tveggja tíma viðveru þar svo bælið var bara eini kosturinn. Fúlt! Mæti því bara tvíefld á næsta ball, hvenær sem það verður nú. Er ekki einhver geim ?
Vinnan hefur verið alveg crazy síðustu vikurnar svo að almenn bloggleysi skrifast á það að þessu sinni. Hef því voða lítið af mér gert og varla hitt nokkra manneskju. Verð nú að fara taka einhvern skurk í þeim málum áður en ég fer að breytast í einhverja einsetu piparjónku, því það er nú ekki langt í að það gerist. Vonum bara að það komi eitthvað gott með vorinu, segir ekki einhvers staðar að góðir hlutir gerist hægt (þó kannski ekki á hraða snigilsins eins og virðist ætla verða). En hvað um það, ætla ekki að fara þreyta neinn með svona röfli...
Bílaleitin gengur voða hægt, eins og aðrar "leitir" hjá mér. Það getur verið soldið erfitt að eiga til að hugsa hlutina of mikið og vera óákveðin. Það kemur manni ekki neitt áleiðis. En ég læt allavega Skranser duga þar til eitthvað annað býðst. Ef einhver hefur áhuga á að ættleiða hann gegn vægri borgun þá bara let me know, you know where to find me!
JK