Vonbrigðin...
"Mmmm.., laugardagur á morgunn og þá get ég sofið út" var það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég vaknaði í gær og kúrði mig enn meira í sængina. Vonbrigðin voru jafn mikil og þessi góða tilfinning, þegar ég fattaði það örskotsstundu seinna að ég ætti að vera á vakt á laugardaginn (í dag) sem þýðir að ég þyrfti að vera mætt eldspræk á slaginu átta. Eyddi svo gærkvöldinu í að svekkja mig á því að geta ekki skellt mér á Sálarball með Glimmergellunni þá um kvöldið, því að vinnan biði jú rétt handan við hornið.
Í dag sit ég svo hér í grámyglunni við tölvuna í vinnunni og bíð eftir að klukkan verði fjögur. Það hefur ekki verið neitt að gera hjá mér og hefði ég bara allt eins getað kíkt á ball í gær og svo slappað af hér í vinnuni í dag. Bömmer...
En ég er þó allavega ekki þunn :)
Ætla allavega að sofa út á morgun, that's for sure, og aldrei að vita nema ég kíki bara eitthvað út á lífið í kvöld, verst hvað það er ömurlegt veður.... We'll see...