7 - 9 - 13

Föstudagurinn þrettándi í dag. Óhappadagurinn mikli.
Ég vona nú að ég sleppi við alla óheppni í dag, er alveg búin að fá minn óheppni-skammt þessa vikuna.
Var nefnilega svo "heppinn" að það var keyrt á bílinn minn, búhúú.... En hann er þó nokkurn veginn í lagi, allavega ekkert sem ekki er hægt að laga, svo nú er bara að sjá hvort að það borgi sig að gera við Skranser greyið. Hann er víst orðinn eitthvað gamall. Bíð eftir að fara með hann á verkstæði, svo þetta kemur allt bráðum í ljós.
Ætla bara hafa þetta stutt núna!
Passið ykkur bara á bílunum
