sunnudagur, apríl 22, 2007

Bílar

Síðustu dagana hefur líf mitt mikið snúist um bíla.
Skoða bíla, prófa bíla, fara með bíl í skoðun, fara með bíl á verkstæði, fara í tryggingarnar út af bíl, hringja í tryggingarnar út af bíl -oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, hugsa um bíla, þvo bíl, tala um bíla... ég gæti alveg haldið áfram með meira. Og þetta bílastúss er ekkert búið, því ég þarf að fara með bílinn á verkstæði og ekki eitt heldur tvö. Mig langar að selja minn bíl og kaupa mér annann bíl.
Bílar bílar bílar...
Með þessu áframhaldi verð ég eins og versti karlmaður, hugsa bara um bíla! Er reyndar orðin soldið þreytt á þessu bílastússi, langar bara fara gera eitthvað svona stelpulegt eins og að kaupa mér skó!



Kannski hætti ég þessu bílagrúski bara og kaupi mér bara hjól.
Hvernig væri það ?