Blúbb...
Jæja.... aftur komin ný vinnuvika, svei mér þá, það eru bara alltaf mánudagar. -Geisp!
Helgin leið hjá með tilheyrandi skralli og skemmtilegheitum. Átti alveg stórskemmtilegt laugardagskvöld með the Buddettes. Byrjuðum á smá grilleríi og skakkaföllum sem því fylgja, þar sem undirrituð var sett í hlutverk yfirgrillara. Veit ekki alveg hvaðan stelpurnar fengu þá flugu í höfuðið að ég ætti vel í það hlutverk en ég leysti þetta allavega af hendi án nokkurs stórvægilegs skaða, bara ein kótiletta brann og tel ég það bara nokkuð vel sloppið. Svo vorum við nú nokkuð vel birgar af Blushi og ýmsum öðrum góðum veigum og runnu þær ljúft niður, eiginlega einum of ljúft, on the side var svo slatti af slúðri og smá dash af "drama" svo úr þessu var gott kvöld. Kíktum svo í bæinn eftir að hafa spilað smá af kjöthleifnum (Meatloaf) og Dirty Dancing -klikkum sko ekkert á stelpumúsíkinni, alveg brill :)
Var svo á tjúttinu fram undir morgun og endaði kvöldið á gay-bar, reyndar af algjörri slysni. Alltaf soldið sérstök stemming að fara á svoleiðis staði, en það var samt gaman.
Næsta mál á dagskrá er svo bústaðarferð með saumó um helgina. Deeem hvað ég ætla að hafa það gott. Liggja í bleyti í pottinum með glas við hönd, og ekkert vatnsglas neitt :-) Þess á milli verður legið á beit og slappað af. Hlakka sko til!

Læt svo fylgja hér eina af the Buddettes í góðu geimi

Og hér er yours truly að myrða kótilettu við grillið