miðvikudagur, apríl 04, 2007

Money, money, money....

Nú jæja, mín bara að verða rík! Eða svo segir Mogga stjörnuspáin allavega og Mogginn lýgur nú aldrei ;)

"Krónurnar eru loks að koma í kassann! Þú færð vexti og vaxtavexti. Vinnan er bara ánægjuleg og þú færð orku úr umhverfinu. Þú ert ekki að gera neitt til að skapa þessar aðstæður, þú ert bara þú sjálf/ur. "

Annars er ég bara í góðu geimi, ánægð með lífið og tilveruna. Komst að nokkru í gær sem kom mér bara ánægjulega á óvart, svo ég er bara kát. Fríið er líka alveg að bresta á og er það bara hið besta mál. Ætla byrja sældina á því að fara í kvöld í góðra vina hópi að fá mér eitthvað gott í gogginn og jafnvel súpa á eins og einni vætvæn með.. ummm... hlakka bara til :)

Svo eru fleiri spennandi hlutir í gangi. Hafa gefist ákveðin tækifæri og nú er bara að sjá og spekúlera hvað maður eigi að gera, er rosa spennandi en rosa erfitt um leið svo það er bara undir mér komið hvað ég vil gera. Ætla liggja á meltunni með þetta og sjá hvað gerist, kemur í ljós síðar.