Páskafríið...
...er alveg að skella á.
Mikið verður nú gott að fá smá tíma frá vinnunni og geta slappað eitthvað aðeins af. Ég þykist ætla læra eitthvað í ónæmisfræðinni í fríinu en hef samt tilfinningu fyrir því að það eigi eitthvað eftir að gerast lítið í þeim málum. Ætli ég liggi ekki bara á (súkkulaði)beit og horfi á sjónvarpið. Svo er nú líka leikhúsferð og tvö fjölskylduboð á dagskránni svo ég verð ekki bara heima í leti.
Lagði leið mína aðeins á tjúttið í bæinum um helgina. Hef ekki farið í þónokkuð langann tíma og var alveg farið að langa gera eitthvað annað en að horfa á sjónvarp allar helgar, ekki laust frá því að djammpúkinn í manni sé eitthvað að vakna aftur. Dreif mig með glimmergellunni og skemmtum við okkur bara vel saman og höguðum okkur eins og prúðum dömum sæmir, en ekki hvað... :) Hlakka bara til að fara á tjúttið næst!
Er enn að velta fyrir mér hvað ég á að gera af mér í sumarfríiu, en vonandi fer nú að koma einhver mynd á þetta hjá mér. Ætla ég bara láta þetta verða skemmtilegt sumar og reyna vera dugleg við að rífa mig uppúr rútínunni, því ef ég geri það ekki -hver gerir það þá.
Segi bara "Think ahead to get ahead"