miðvikudagur, apríl 18, 2007

Veturinn að klárast!

Síðasti dagur vetrar í dag. Langþráð sumarið tekur við á morgunn, eða allavega á almanakinu alveg örugglega ekki í veðráttunni. Finnst bara gott að hugsa til þess að sumarið sé að koma, þó ég sé nú alveg að fíla veturinn vel þá er líka gott að fá smá hlýju og "gott" veður líka. Ætla bara eiga rólegann dag á morgunn og njóta þess að eiga frí. Ætla sko að sofa út og gera eitthvað skemmtilegt :) Nenni engu tjútti í kvöld, en bæti það bara upp um helgina. Miðbærinn er hvort eð er í ljósum logum akkúrat þessa stundina svo allt djamm væri frekar dauðadæmt. Planið um helgina er að hafa smá Spazza hitting og svo ætla The Buddettes að bregða undir sig betri fætinum og mála bæinn rauðann :) Verst er að inn í þessu plani þarf ég líka að troða inn helgarvinnu, en oh well shit happens og læt ég það sko ekki stoppa mig!

Don't stop me Now, I'm havin' such a good time....

Hlakka bara til og ætla skemmta mér vel!