Honey, I'm home!
Sælar elskurnar mínar, er komin aftur frá London.Er búin að jafna mig á flugþreytunni svona nokkurn veginn, svo það er ekkert sem stendur í vegi fyrir að koma með eins og eina færslu.
London var eins og hún á að vera, skýjuð og skítug með slatta af rigningu og roki, svona on the side. London var líka full af búðum, börum og fólki (eiginlega allt of mörgu fólki) og góðri stemmingu að sjálfsögðu.
Tókum við stöllur svo smá trylling í búðunum á Oxford Street og víðar undir dyggri leiðsögn Hennýar sem sá um að leiða okkur inn í búðirnar meðan ég og Ninna prófuðum kreditkortin okkar aðeins. Rigningin í London sá svo til þess að kortin myndu ekki brenna yfir um, því það gat orðið vægast sagt blautt. Var því eina ráðið að hlaupa enn hraðar úr einni búð yfir í aðra og versla meira, því kortin voru stundum alveg on fire ;) Tókum við svo líka smá túrista fíling á ferðina og kíktum í Maddömmuna og á furðulega liðið í Camden, var alveg sérlega áhugavert.
Svo var auðvitað kíkt á barina líka, en ekki hvað? Tókum við Henný einn mjög seiðandi dans á dansgólfinu sem fékk gaurana í kringum okkur alveg til að tryllast. Þeim fannst við svo æðislegar að þeir meir að segja gáfu frá sér ýmis undarleg hljóð (að okkur fannst) til að lýsa hrifningu sinni. Við stöllur létum það nú ekkert á okkur fá og héldum bara áfram að dilla okkur við ljúfa tóna DJ-ins og skemmtum okkur til hins ýtrasta og held ég að ég hafi aldrei hlegið jafn mikið þegar ég hef verið að dansa og þarna með þessa gæja í kringum okkur. You just had to be there.
Annars höguðum við ferðalangarnir okkur mjög vel og vorum landi og þjóð til mikils sóma. Reyndar afrekað undirrituð það að vera skömmuð, opinberlega, í undergroundinu. Já, þið lásuð rétt ég var skömmuð! Var það reyndar vegna atviks sem var alveg "óvart" þannig séð, ég var bara saklaus túristi... Málið var að við sátum og vorum að bíða eftir lestinni okkar, mér
var farin að leiðast biðin eitthvað og fór að fikta í myndavélinni og taka myndir af hinu og þessu, sárasaklaust alveg hreint. Nema hvað ég heyri að lestin er að koma og ákveð að það væri nú sniðugt að smella einni af henni bruna inn í stöðina. Svo kemur lestin og ég smelli af. Við þetta flautar lestarstjórinn á mig og okkur fannst það bara fyndið, héldum að það væri bara húmor í kallinum og hann væri bara að "heilsa" en boy ó boy, we were wrong. Þegar komið er inn í lestarvagnin og lestin farin af stað kemur tilkynning í hátalarakerfinu til manneskjunar með myndavélina að það væri stranglega bannað að taka myndir með flassi í göngunum og bla bla bla... Ég vissi auðvitað alveg upp á mig sökina, kafroðnaði og var eins og kjáni meðan stelpurnar hlógu eins og fífl að krimmanum mér! Sem betur fer voru nú ekkert margir í vagninum sem við fórum í því það fór ekkert á milli mála um hvern lestarstjórinn var að tala um. Ég man þetta bara næst þegar ég fer í lestina, lexían er lærð.

Henný og Gaui ég þakka kærlega vel fyrir mig. Það var alveg æði að fá að heimsækja ykkur
Þar til næst
JK