miðvikudagur, maí 23, 2007

Næstum mánuður...

...síðan ég skellti einhverju hingað inn.
Finnst samt einhvern veginn ekki svo vera, en það er greinilegt að ég verð MJÖG seint talin til einhverra afreksbloggara. Búin að fá fullt af hugmyndum að færslum, sem einhverra hluta vegna hafa bara ekki ratað hingað inn.

Ég er búin að bralla margt skemmtilegt og minna skemmtilegt síðan síðast.
- Fór í sérdeilis skemmtilega sumarbústaðarferð með kjaftöskunum mínum. Ummm.. .hvað það var næs. Lá í pottinum (brann að vísu) sötraði á breezer, blushi og fleiri góðum veigum, borðaði góðan mat og hafði það gott.
- Lærði svo fyrir próf í ónæmisfræði, það var ekki eins skemmtilegt.
- Tók próf í ónæmisfræði, það var ennþá minna skemmtilegt.
- Fór svo í júró/kosninga/prófloka/afmælispartý, það var skemmtilegt.
- og svo bara fleira og fleira...

Næsta skemmtilega mál á dagskrá er svo Londonferð um helgina. Hlakka ekkert smá mikið til. Ferðafélaginn verður Jónína og ætlum við að láta greipar sópa í búðunum á Oxford og víða og skoða svoan eins og einn, tvo bari. Henný og Gaui eru svo æðisleg að vilja hýsa okkur, svo þetta er bara alveg frábært!

Vona nú samt að ég verði með lappirnar í lagi í ferðinni, því áskorun dagsins er fjallganga. Ég (fjallageit) og Anna (fjallagarpur) ætlum að labba upp á Úlfarsfell. Ætli það endi ekki með því að Anna skokki þetta léttilega upp og ég skríði á fjórum fótum... neh... vonum ekki!

Læt ykkur vita hvernig fer!

Bless í bili