þriðjudagur, júní 19, 2007

But I got high....

Tjah.. hvað getur maður sagt.
Held bara að town-inn minn sé bara að breytast í eitthvað gettó. Dóp, sérsveitin og allt! Á meðan þetta var í gangi var ég bara í góðu yfirlæti hér í borg óttans, so it wasn't me. Reyndar er þetta eitthvað aðkomulið sem er að þessu veseni, ekki "saklausa" sveitafólkið.
En þið vitið allavega hvert þið eigið að fara ef ykkur langar í....

Fréttablaðið, 19. júní.
Sigaði hundi á lögregluna
Kalla þurfti út aukalið lögreglumanna frá Reykjavík og Selfossi, þegar kannabisræktun var gerð upptæk í Þykkvabænum á föstudagskvöld. Þremur Doberman hundum var sigað á lögregluna sem var á staðnum og beit einn þeirra lögreglumann.

Á föstudagskvöld var haldinn dansleikur í héraðinu og fékk lögreglan á Hvolsvelli lögreglumenn frá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að aðstoða við hefðbundið eftirlit. Jafnframt var ákveðið að skyggnast um eftir marijúanaræktun á bæ í Þykkvabæ, en lögreglunni á Hvolsvelli höfðu borist ábendingar um að slíkt kynni að vera í gangi.

Þegar lögreglumenn frá Hvolsvelli og fíkniefnadeildinni komu á vettvang var þar fyrir einn maður með þrjá hunda. Hann sigaði þeim umsvifalaust á lögreglumennina með þeim afleiðingum, að einn hundanna beit einn lögreglumanninn í lærið. Lögreglumaðurinn slapp þó við meiri háttar meiðsl.

Þegar þessi staða var komin upp var kallað á liðsauka frá lögreglunni á Selfossi. Þá voru lögreglumenn úr sérsveit Ríkislögreglustjóra kallaðir á staðinn. Jafnframt var fengin heimild til húsleitar. Samtals 52 kannabisgræðlingar fundust, sem voru ræktaðir í þar til gerðum geymsluhólfum við bæinn.

Maðurinn, sem beitti hundunum á lögregluna, var gestkomandi á bænum og var hann einn heima þegar lögregluna bar upphaflega að. Eftir að liðsauki hafði borist kom annar maður akandi að bænum, en hann mun vera húsráðandi þar og góðkunningi lögreglu. Mennirnir voru báðir handteknir, en þeir látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Húsráðandi var grunaður um akstur undir áhrifum lyfja, auk þess sem hann hefur játað að eiga kannabisplönturnar. Samtals voru að störfum þarna níu lögreglumenn frá fjórum embættum þegar mest var.

Þetta er í þriðja skiptið sem lögreglan tekur marijúanaplöntur á þessum bæ á átta mánaða tímabili. Í fyrsta skiptið tók lögreglan svipað magn og um tíu plöntur í annað skiptið.

„Við erum með hert eftirlit og aðgerðir gegn málum af þessu tagi hér í héraði," segir Sveinn Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. „Við fáum aðstoð frá fíkniefnadeildinni í Reykjavík, svo og leitarhunda frá Ríkislögreglustjóra. Við erum með úrvalslið, sem skiptir öllu máli."