Fjallatrít á dagskrá í dag. Æðislegt veður svo ég kvarta nú ekki. Planið er að klífa Keili í góða veðrinu og njóta útsýnisins og skella sér í heitu pottana í einhverri laug eftir það.
Fjallatrítl síðustu viku gekk vel, fórum bara stutt í það sinn enda saumó um kvöldið. Var því bara trítlað á hólinn Helgafell í Mosfellssveit því tími gafst ekki í stærri "hól".
Helgin leið svo með tilheyrandi skralli. Kíkti út bæði föstudags- og laugardagskvöldið og hefur það bara ekki gerst í þvílíkt langann tíma. Var að fara á tjúttið í fyrsta sinn eftir að reykingabannið hefur verið sett á og var það eitt og sér spes upplifun fyrir sig. Á föstudagskvöldið hrökktumst við Glimmergellan á milli staða, því alltaf gaus upp einhver ógeðis skítalykt sem flæmdi okkur í burtu. Okey maður meikar margt á djamminu, en endalausa viðrekstrarfýlu er ég ekki alveg að gúddera. En skítafýla og önnur ólykt náði heldur ekki að forða mér algjörlega frá tjúttinu, svo ég fór bara aftur á laugardaginn, hehe.... Held að þessir skemmtistaðir verði aðeins að athuga loftræstigræjurnar hjá sér. Verð nú samt að viðurkenna að það var ansi ljúft að vakna daginn eftir og anga ekki eins og gamall öskubakki og geta hugsað sér að nota fötin, sem maður var í kvöldið áður, einhvern tímann aftur.
Drulluköku helgarinnar fær svo Thorvaldsen með sinn þvílíkt dýra bar. Það liggur við að maður þurfi að taka lán til að geta fengið sér í glas (eða öllu heldur glös) þar. Alveg gleited, fæ mér allavega ekki mojito þar aftur -þó hann hafi nú verið góður.