þriðjudagur, júní 12, 2007

Skálafell

Önnur fjallganga gönguklúbbsins afstaðin.

Við, fjallagarpurinn (Anna) og fjallageitin (moi), tókum á móti nýjum meðlim í klúbbinn, henni Hafdísi sem fékk viðurnefnið fjallalambið (meeeee...).

Ferðinni var heitið upp á Skálafell á Hellisheiði í blíðskaparveðri, sól og smáááá golu. Fjallið á að vera öllu rólfæru fólki kleift að klífa, samkvæmt einhverjum kokkabókum, svo þetta átti nú ekki að vera mikið mál. Komumst við nú fljótt að því að maður þyrfti að vera eitthvað örlítið meira en rólfær til að fara upp, þetta var pínu bratt, en við létum það nú ekkert stoppa okkur. Að venju trítlaði fjallagarpurinn þetta létt og fimlega í fylgd með fjallalambinu á meðan fjallageitin var nær dauða en lífi á tímabili. En við vorum vel búnar eins og vönum fjallkonum sæmir og á uppleið var súkkulaði dregið upp úr töskunni og tvíefldist fjallageitin alveg við það og restin var leikur einn.

Þegar upp á topp var komið var svo heldur meira rok en "á jörðu niðri" og máttum við alveg passa okkur á því að missa ekki dótið okkar, því það hefði endað einhvers staðar á Eyrabakka hefði vindurinn "náð" því. En þetta fór allt saman vel. Eftir smá myndasessjón á toppnum var svo trítlað niður, sem var heldur auðveldara en leiðin upp, og hverir og fleira sniðugt skoðað.

Endaði ég svo á því að hálf haltra inn í bílinn, ekkert slösuð neitt, heldur þurfa þessar heeeelv.... blöðrur alltaf að láta vita af sér ef ég hreyfi á mér lappirnar. En það lagast og verð ég good to go í næstu ferð og í heita pottinn eftir labbið.

Takk fyrir mig fjallkonurnar mínar :)
Fjallageitin


Komnar upp á topp

Smá pósa við hverina

Blúbb blúbb