Ég get orðið farið að byrja alla "pósta" á "langt síðan síðast". Það líður alltaf orðið svo langur tími á milli þess að ég hendi einhverju hingað inn. En ætla nú samt að láta vita aðeins af mér.
Er búin að fara í smá sumarfrí. Tók tvær vikur núna í júlí og er að klára fyrstu vinnuvikuna eftir frí núna, og meeeen hvað ég hefði verið til í að vera lengur í fríi. Ömurlegt að þurfa hangsa í vinnuni all day long, ég tala nú ekki um þegar 12 tíma vakt bíður.... En ég á nú samt meira frí eftir, þessar 2 vikur voru bara part one. Ætla halda áfram að njóta blíðunnar og lífsins í ágúst, hef allavega eitthvað til að hlakka til.
Trúi því samt ekki að það sé farið að síga á seinni hluta sumarsins. Mér finnst sumarið bara vera rétt byrjað en það er víst ekki svo. Áður en ég veit af verð ég farin að sjá litla krakkaorma með skólatöskunar á bakinu, verð farin að bölva brjáluðu traffíkinni á leiðinni í vinnunna, og fer að taka upp kartöflur í sveitinni. Sumarið er bara allt oft stutt, en um að gera njóta þess meðan það er.
Gerði eitt í sumarfríinu sem ég hef ætlað mér að gera lengi. Ég sleit sambandi sem hefur staðið í heil fimm ár. Við höfðum gengið í gegnum súrt og sætt saman og átt góðar stundir, en þær slæmu voru farnar að vera of margar, svo þetta var ekki alveg að ganga fannst mér. Hann fullnægði ekki kröfum mínum og var búinn að missa mikið af þeim sjarma sem hann hafði þegar ég hitti hann fyrst, þokkinn var farinn. Ég bara varð því að losa mig við hann, fá mér einhvern sem hefur meiri snerpu, er kröftugri og umfram allt -flottari ;) ;) ;)
Jábbs, þið gátuð rétt (geri ég ráð fyrir). Við Skranser erum ekki lengur eitt! Hann er kominn í eigu annars og veit ég að sá á eftir að fara vel með hann. Gott að vita af því að hann er í góðum höndum, því ég vildi honum nú alls ekkert illt, enda skildum við í góðu.
Sá nýji er Toyota Auris, svartur. Er ekki komin með gælunafn á gripinn ennþá, og kannski geri ég það ekkert, erum bara enn að kynnast og hefur þetta gengið vel enn sem komið er. Me like ;) Svo er það bara spurningin um "once you go black..."

