laugardagur, ágúst 11, 2007

6:30

Vaknaði (eldspræk) klukkan hálf sjö í morgun. Já, hálf sjö. Að vakna svona snemma á laugardagsmorgni finnst mér jaðra við lögbrot, að öllu jöfnu sef ég framundir hádegi á laugardögum og finnst fátt betra en að kúra undir hlýrri sæng, en ekki í dag. Átti að vera mætt í vinnuna klukkan átta. Eftir nokkur "snús" tókst mér þó að fara á fætur og meeen hvað mig langaði að fara sofa aftur. Á meðan fullt af fólki var að staulast heim eftir tjúttið í bænum þá var ég að nudda stýrurnar úr augunum og reyndi að greiða hárflókann og koma mér í spjarirnar. Var svo komin úr húsi rétt rúmlega sjö. Ég fer nú venjulega ekki svona snemma á fætur til að fara í vinnuna, reglan er eiginlega sú að tuttugu mín. í vinnu og rokið á lappir og brunað af stað. En í dag tók ég strætó í vinnuna, nokkuð sem ég hef barasta aldrei gert, svo ég vildi nú vera tímanlega í stað þess að missa af the bus og vera allt of sein. Er nefnilega að fara í grillveislu í sveitina eftir vinnu með vinnufélögunum og ætla fá mér smá bjór og smá hvítvín og ekki fer ég að bruna á kagganum mínum heim eftir það, gæti endað illa. Svo nú er bara að bíða eftir að vinnudeginum ljúki svo að fyrsti bjórinn verði opnaður.
Þetta er orðið meiri drykkjan á manni... Bara djamm og bús um hverja helgi. En hva... það er sumar, þá má drekka, "e' þa' ikki ?"