föstudagur, ágúst 24, 2007

Aukakílóin, aukakílóin, út um allt á mér.....

Baráttan endalausa við fitupúkann er hafin, enn einu sinni.

Tók mér tak og mætti í ræktina í gær. Ákvað að það væri nóg komið að vera bara styktaraðili Hreyfingar og það væri vænni kostur að mæta þangað og fá þá vonandi eitthvað fyrir peninginn sem ég er búin að borga í allt sumar. Held að tíminn í gær hafi kostað eitthvað um 9000 krónur. Verð bara að vera dugleg og mæta fljótt aftur og þá verð ég komin niður í c.a. 45oo krónur tíminn. Ódýr ha.... (alltaf að spara sko!).

Tók ég nú ekkert brjálæðislega mikið á því en dreif mig þó samt í tíma, í stað þess að lufsast eitthvað í leiðindum á hlaupabretti. Ákvað fljótt að taka þetta á skynseminni og hafa öll lóð í léttari kantinum því vöðvarnir voru nú orðnir heldur rýrir eftir sumarið, -nema lærin, fjallatrítlið hefur bjargað því. Var ég mjög fegin þegar ég vaknaði í morgun að hafa bara tekið þetta á skynseminni og haft lóðin létt, því kroppurinn var frekar lemstaður eitthvað og stífur. Greinilegt að maður er sko algjörlega dottin úr öllu formi, eins og það var nú fínt áður *öhömmm... hóst hóst*. Veit ekki hvernig ég væri ef ég hefði ætlað að taka þetta á einhverjum hetjustælum, sæti ábyggilega æææ-andi og óóóó-andi og gæti ekki hreyft á mér rassgatið af kvölum.

Svo er bara spurning hvenær ég læt af því að mæta í næsta tíma, maður má náttúrulega ekki fara of geyst af stað, heldur taka þetta hægt 0g örugglega. Er það ekki? ;)