LRRTM...
.... er gen sem sagt er að stjórni því hvort maður verði örvhentur eða ekki. Einnig eiga þeir sem bera genið á hættu að vera geðklofa. Eða það stendur í mogganum allavega, og aldrei lýgur nú mogginn, ooonei! Þannig ég hlýt að eiga meiri hættu á að verða geðklofi, heldur en þessi 90% (eða hvað sem það nú er) sem eru rétthent, fyrst ég er svona aðeins vinstri sinnuð. Svo þið skuluð bara passa ykkur á mér, ég gæti leynt á einhverju óvæntu! Ha Ha Ha...
Æ, verð nú samt að segja að mér finnst þetta allt saman vera hálfgerð vitleysa. Veit ekki hvað ykkur hinum finnst. Kannski er ég bara í vörn, því ég er í "minnihlutahóp" ha ha ha....
En að öðru. Er einhver sem veit eða getur sagt mér hvar maður getur búið til nýtt "template" og þá er ég ekki að meina það sem er fyrir í bloggernum, heldur svona köstom dísægn sem maður gerir sjálfur. Er reyndar algjör sökker í þessu HTML dóti öllu saman, en hva... ég ætti nú að geta lært það eins og aðrir. Langar svo að breyta útlitinu en nenni ekki að vera leita endalaust að einhverjum upplýsingum. Svo endilega látið ljós ykkar skína nördin mín :)
KV.
Lefty JK
c",)
