föstudagur, ágúst 31, 2007

Síðasti dagurinn

Í dag er síðasti dagurinn sem ég mun starfa fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús. Ég vissi reyndar ekkert af því fyrr en í dag, eins og flestir sem vinna með mér. Las þetta bara á mogganum. Frekar skrítið að lesa eitthvað sem viðkemur vinnunni á netinu, en ekki fá það svona "beint í æð" á vinnustaðnum sjálfum.

Frá og með morgundeginum mun ég nefnilega vinna fyrir Landspítalann.