þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Í sumarfríi

Er í hluta tvö af sumarfríinu mínu. Bara vika í þetta sinn en mikið er það nú ljúft að hafa ekkert hangandi yfir sér og bara geta gert það sem mig lystir, sérdeilis prýðilegt alveg hreint. Er nú samt búin að hafa nóg fyrir stafni þessa daga, barnapössun á Stokkseyri, sund, búðarráp, sitið í sólinni á Austurvelli, grillað og borðað góðan mat og verið í góðra vina félagsskap. Alveg æði :)

Ég og Ninnz brugðum svo undir okkur betri fætinum og fórum í smá túristaleik í dag. Brunuðum á Þingvöll og örkuðum niður Almannagjá með öllum túristunum. Gerðum okkar allra besta til að falla ekki alveg inn í þann hóp og held að okkur hafi tekist nokkuð vel til með það. Á meðan túristarnir voru klæddir í úlpu, húfu, vettlinga og jafnvel snjóbuxur í norðanáttinni, þá þrömmuðum við bara í "gollunum" og með sólgleraugun á trýninu. Algjörar pæjur. Verð nú alveg að viðurkenna að það var smá kalt, en hvað gerir maður ekki fyrir coolið ;) he he he... Næst lá leið okkar á Laugavatn þar sem við ókum eftir rallý braut. Eitt augnablik héldum við að við værum í raun og veru að aka inn í miðja rallýkeppni því við vegin stóð "Vegur lokaður vegna keppni í rallý" og svo með smáu letri 17. ágúst, (#$&$%% smáaletrið)!!! *Hjúkk* Held það hefði ekki farið neitt voða vel ef við hefðum brunað beint á móti keppendunum, en sem betur fer var það nú ekki. En... eftir stutt stopp á Laugavatni og í Kerinu var svo bara brunað í bústað í nágrenninu þar sem táslurnar voru aðeins skolaðar pottinum, kverkarnar vættar og hungrið seðjað. Ljúft líf þessa dagana.

Svo er bara að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera næstu daga í fríinu. Efast ekki um að ég finni mér eitthvað að gera.

Menningarnótt er næsta "stóra" mál á dagskrá, og reyndar Töðugjöldin heima í sveitinni líka. Hugsa að ég láti allt tjútt eiga sig þá, þessa stundina er ég bara aldeilis ekki að nenna standa í einhverjum leigubílaslag þegar líður á nóttina. Svo að vænsti kosturinn þessa stundina er bara að vera bílandi og komast heim fyrir mánudag. Samt er aldrei að vita nema djammpúkinn láti á sér kræla og að öll skynsemi fjúki út í veður og vind. Við sjáum til.