Versló...
... once again.
Er ekki alveg í sma gírnum og ég var fyrir 10 árum síðan. Þá skelltum við Hrönn og Kata okkur saman á okkar fyrstu Þjóðhátíð og vá hvað það var gaman hjá okkur. Að upplifa alla þessa stemmingu og skemmtilegheit í fyrsta sinn er eitthvað sem aldrei gleymist.
Það kemur mér samt á óvart að þjóðhátíðarbakterían hefur ekkert látið á sér kræla þetta árið. Alltaf hefur manni langað eitthvað smá að fara síðan ég fór síðast (2003) en núna er mér alveg sama. Afhverju ? Það veit ég ekki. Kannski er þetta eitthvað þroskamerki, að ég sé að verða of gömul fyrir 'etta. Nei..., held ekki, það er enginn of gamall til að kíkja á Þjóðhátíð í Eyjum. Ég væri eflaust alveg sjúk í að fara ef fólkið í kringum mig væri á leiðinni þangað, en svo er víst ekki svo ég verð ekkert veik að fara.
Innipúkinn verður væntanlega það sem ég vel í ár. Samt virðist sem að kvefpúkinn sé eitthvað að láta á sér kræla, en hann er ekki velkominn þessa helgi, eða aðra daga. Og vona ég bara að hann láti sig hverfa sem allra fyrst. Hugsa að ég taki fyrri hluta helgarinnar bara rólega. Kíki jafnvel í sveitina þegar mesta traffíkin úr bænum verður búin, svo ég geti krúsað um þjóðvegina alein, eins og ég eigi þá. Svo er partý í Dóra-town á dagskránni, ætla nú ekki að missa af því. Vonandi verður bara eins gaman hjá okkur og um síðustu helgi. Ég skemmti mér alveg stórkostlega, svo ekki sé meira sagt. Alveg möst að endurtaka kvöld eins og það aftur. Ekki spurning.
Sjáumst kannski á tjúttinu!
Be there or be square
*SKÁL*