Aftur á mölina
Mætt aftur í borgina, reyndar fyrir nokkrum dögum síðan. Rúllaði hingað á mánudagsmorguninn strax við sólarupprás og mætti eldspræk í vinnuna aftur eftir púlið í sveitinni. Var bara hálfpartinn eftir mig eftir allt puðið, með harðsperrur í höndunum eftir kartöfluþeytingar upp á vél og já.. segja má að ég hafi fundið fyrir allnokkrum "nýjum" vöðvum á meðan þessu stóð. Lappirnar mínar fengu líka sinn skammt af marblettum, en ekki hvað, og voru alveg hreint bjútífúl á tímabili, var sko aldeilis ekki mikið pilsahæf, eða a.m.k. ekki í gegnsæjum sokkabuxum.
Dagskrá helgarinnar verður sú sama og þá síðustu. Já, ég fer bara aftur í moldina og marblettasöfnun. Stanslaust stuð í sveitinni :-)
Dagskrá helgarinnar verður sú sama og þá síðustu. Já, ég fer bara aftur í moldina og marblettasöfnun. Stanslaust stuð í sveitinni :-)
