miðvikudagur, september 05, 2007

Allir í röð

Það hefur reynt nokkuð á þolinmæðina á leiðinni í vinnuna nú síðustu daga.

Eins og þið hafið mörg tekið eftir hefur umferðin vægast sagt verið mikil og liggur barasta við röðin hefjist við dyrnar hjá manni, tja... kannski ekki alveg en það má ekki miklu muna.

Ég skil bara ekki afhverju það springur allt á haustin þegar skólarnir byrja aftur. Ég meina, þetta skólafólk hlýtur nú að hafa verið einhvers staðar í vinnu í sumar og hafa komið sér einhvern veginn í hana, svo það mér alveg lífsins ómögulegt að skilja afhverju allar götur fyllist bara hviss bang þegar skólabjöllurnar fara að hringja aftur!
Ég sé alveg í hyllingum dagana í júlí þegar sem flestir voru í fríi og leiðin greið í vinnuna. Varla bíl að sjá og ég átti alveg veginn, eða svona næstum því. Vona bara að þetta fari að lagast, annars enda ég á því að vera farin að naga stýrið og hamast á flautunni af stressi og óþolinmæði. Reyni bara að halda aftur af mér svo það komi nú ekki til þess.

Spurning um að taka bara upp á því að hjóla í vinnuna, væri allavega ekki mikið lengur á leiðinni, nú eða fara kannski bara aðeins fyrr á fætur -ekki svo galið.