Góði "vinurinn"
Góður vinur minn er væntanlegur í heimsókn í kvöld.
Ég er búin að sakna hans soldið síðan við skildum síðast við, en það eru orðnir nokkrir mánuðir síðan og er ég orðin spennt að hitta hann aftur. Ætla ég að vera búin að koma mér í réttu stellingarnar þegar hann kemur, kúra undir teppi upp í sófa og hafa það notalegt.
Já, hann Dr. House er væntanlegur á Skjáinn í kvöld og verður kvöldið því frátekið fyrir hann. Líffræði nörranum mér finnst soldið gaman að horfa á svona læknadrama með rannsóknaívafi, eða þætti eins og CSI, (sem eru líka komnir aftur á skjáinn eftir sumarið) og fylgjast með hvernig þeir leysa öll þessi vandamál sem koma upp á. Loksins eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu.
Rakst svo á þessa skemmtilegu síðu á netinu um daginn þegar ég var að leita að einhverju sem tengdist vinnunni. Þarna er hægt að lesa um alla þessa sjúkdóma og kvilla sem eru umfjöllunarefni House þáttana, meir að segja hægt að skoða alla þá seríu sem er að byrja hjá okkur og þá nýjustu sem er í gangi í US and A. Nördinu mér finnst voða gaman að skoða þetta ;) Spurning hvort ykkur hinum finnist þetta jafn áhugavert og mér.