mánudagur, október 08, 2007

Akureyri...

...var alveg þrælskemmtileg. Það er bara alltaf gott og gaman að koma þangað, klikkar ekki og þá sér í lagi þegar maður fer í svona góðum félagsskap.

Þetta var sko algjör stelpuferð fram í fingurgóma. Spiluðum algjöra stelpumúsík í bílferðunum, sungum með ABBA, Dirty Dancing, Grease, 80's tónlist og fleiri góðum og við sem vorum ekki í því að keyra, þeas ég og Dóra drukkum smá söngvatn með svo það myndu nú ekki heyrast neinir falskir tónar :-) Lentum á Akureyri í þessu líka blíðskaparveðri, roki og rigningu eftir háskaför á Öxnadalsheiðinni. Það er nefnilega víst ekkert gaman að keyra bíl í þoku og rigningu á óstikuðum og ómerktum vegi þegar snarbratt gil er fyrir neðan (sem við reyndar sáum ekki í myrkrinu, eiginlega sem betur fer því þá hefðum við snúið við á punktinum) og höfðum á tímapunkti ekki hugmynd um hvar á landinu við gætum eiginlega verið. Þegar í íbúðina var komið var bara tekið handa við að fylla ísskápinn, sem tókst svona glimrandi vel. Við tók svo slúður og prufur á drykkjunum okkar.

Laugardeginum eyddum við svo í almenna leti. Alltaf gott að sofa út. Svo tóku við fastir liðir eins og venjulega, Bakaríið á Brúnni (sem allir Akureyringar virtust vera komnir í), tilraunir til að sjoppa eitthvað sem tókust því miður ekki, (veit bara ekki hvar þetta fólk fyrir norðan fær fötin sín, því ekki voru þau í búðunum) sjónvarpsgláp og svo meiri leti. Hættum þó að vera latar þegar líða tók á kvöldið. Þá var algjörlega skipt yfir í pæjugírinn. Skvísuðum okkur upp, skelltum drykki í glös og við tók djammið. Dóra Egg er með svo góð sambönd að hún reddaði okkur fríkeypis í sjallan, svo að við áttum bara meiri aura til að eyða í kokteila á barnum. Menn í svörtu spiluðu svo fyrir okkur og þeir voru ekkert að klikka. Kvöldið var alveg stórskemmtilegt, fyrir utan smá feilspor í orðsins fyllstu, smá rugl og vitleysa og þess háttar -allt það sem þarf til að gera þetta eftirminnilegt og skemmtilegt.

Sunnudagurinn var frekar þreyttur. Höfðum við þó allar heilsu í að heimsækja Hlölla (ekki í fyrsta skiptið) og djúsa okkur upp í þrif og skemmtilegheit. Brunuðum við svo sáttar heim á leið en fengum alveg sjokk þegar við sáum hvaða manndrápsveg við höfðum verið að keyra á föstudeginum.

Ég er bara strax farin að hlakka til næstu ferðar. Og stelpur þakka risalega vel fyrir :)
- "áttu skinkubát?"
- "já"
- "já, ég ætla að fá einn pepperoníbát" ;)

*** What happens in Akureyri, stays in Akureyri ***


JK
skakkalöpp.
Ísskápurinn góði, fullur af góðgæti :)


Sætar skvísur...


...og ein svona up close