miðvikudagur, október 03, 2007

Allt bleikt


Ætla að hafa bleikt þema á blogginu mínu þennan mánuðinn, svona til að minna ykkur á að styrkja rannsóknir gegn brjóstakrabbameini, ég hvet ykkur líka til að kaupa einn svona bleikann borða í næstu búð eða apróteki. Á reyndar eftir að gera það sjálf (gleymdi því áðan þegar ég var út í búð) en kippi einum með í næstu búðarferð.
Nýja vinnan gengur bara vel. Er reyndar voða lítið búin að gera, hef ekkert verið inni á labbanum ennþá. Er bara búin að vera lesa mér til svo síðustu dagar hafa verið rólegir. Það er alveg ótalmargt sem ég á eftir að læra og nóg af nýjum hlutum framundan sem ég þarf að tileinka mér.
Mér líst voða vel á staðinn. Allt svo nýtt og flott og fínar græjur, eða allavega ef maður miðar við fyrri vinnustaðinn. Ég er meir að segja komin með mitt eigið skrifborð og tölvu, var sko ekki með neitt svoleiðis á hinum staðnum svo þetta er alveg stórt skref upp á við. Me like it ;)
Framundan er svo orlofsferð einhleypra húsmæðra norður yfir heiðar og er ég sko sérdeilis spennt fyrir þeirri ferð.
Ánægð með lífið og tilveruna þessa dagana. Gott mál.