Á morgun!
Styttist í Akureyrarferð the Buddettes.
Um þetta leyti á morgun verðum við væntanlega búnar að koma okkur vel fyrir í íbúðinni sem við höfum og búnar að opna bjór/blush/hvítvín/whatever. Tappinn verður ekki settur í flöskurnar fyrr en löngu síðar, rétt fyrir brottför í bæinn, eða OK kannski eitthvað aðeins fyrr -þurfum víst að keyra heim líka,nema við náttúrulega náum bara í einn myndarlegan bílstjóra sem er viljugur að fara í smá sunnudagsbíltúr í RVK.
Menn í svörtu fréttu svo af plönum okkar að heimsækja AK, svo þeir ákváðu bara að slást í hópinn og ætla trylla lýðinn á laugardaginn. Kannski að við hittum þá bara í Sjallanum, aldrei að vita.
Ætla samt að fara koma mér í það að henda einhverjum pæjufötum og meiköppi ofan í tösku, strauja nokkra larfa og hendast í sturtu. Semsagt nokkur smávægileg atriðið sem þarf að klára fyrir háttinn, því strax eftir vinnu á morgun er það bara Akureyri express.