laugardagur, október 13, 2007

Rólegheit

Er ekki í alveg sama partýgírnum og um síðustu helgi. Enda er löppinn ekki alveg 100% í lagi ennþá, svo ég bíð með öll partý þar til þessi "íþróttameiðsl" lagast.

Skrapp því bara til litlu sys eftir vinnu í gær. Kallinn hennar er víst að leika sér eitthvað í útlöndum svo ég ákvað að ég skyldi sinna systur/móðursystur hlutverkinu á meðan og halda henni og syninum félagsskap. Svo er líka allt of langt síðan ég sá litla krúttið, hann hefur bara breyst heilan helling síðan ég sá hann síðast. Á milli þess sem ég kjassast í litla kút hef ég gætt mér á ýmsu góðgæti. Erum búnar að skrepppa í pullaran (of course) þar sem ég fékk örugglega sveittasta borgara sem ég hef fengið, fitan gjörsamlega lak úr honum og sji.... það lá við að ég fyndi hana setjast utan á lærin á mér, en góður hann var og það er það sem máli skiptir :) Framundan er svo meira sukk, nammi og djúpsteiktur matur á dagskrá í kvöld. Yum yum yum...

Ætli átakið "belgurinn burt" hefjist svo ekki eftir laaanga pásu aftur eftir helgina. Ætli ég verði ekki bara að byrja á því að leggja áherslu á magaæfingarnar svona til að byrja með enda af nógu af að taka, get allavega ekki farið að hlaupa eins og monkey á hlaupabrettinu það myndi bara enda í vitleysu. Anna! við verðum bara á fjarsambandi og peppum hvor aðra upp ;)