sunnudagur, október 28, 2007

Vetur í sveitinni

Rúllaði á kaggnum í sveitina í gær. Ekkert djamm eða annað þess háttar á dagskrá þessa helgina, svo það var bara home sweet home.
Litli bró verður sweet sixteen á morgun svo mútta skellti upp smá afmæliskaffi í dag. Það er reyndar aldrei neitt "smá" þegar hún mamma tekur sig til í bakstrinum, nóg var af kökunum og öðru góðgæti, namm namm og er maginn alveg vel pakkaður af súkkulaði rjóma og sykri :)
Þegar ég vaknaði svo í morgun var veturinn bara mættur á svæðið. Allt hvítt! Fannst mér því alveg tilvalið að kíkja í smá göngutúr (brenna nokkrum kal. fyrir veisluna sem var framundan) og kippti myndavélinni með.