Nýji megrunarkúrinn
Ég er að prófa nýjan megrunarkúr. Kúr sem alveg þrælvirkar meir að segja. Frá því í gærmorgun eru tvö kíló fokin, tvö kíló á rúmum sólarhring. Pælið í því. Ég skil bara ekki hvað ég hef verið að hugsa hingað til, að puðast og svitna eitthvað í ræktinni dag eftir dag þegar þetta getur verið svona einfalt.
OK málið er bara svona. Ná sér í eina ágætis magapest, með lystarleysi, vanlíðan, svitaköstum, krömpum og öllu þessu helsta sem fylgir. Hafa ekki löngun í að borða neitt, fram að kvöldmat í gær hafði ég bara borðað eina ristaða brauðsneið og drukkið vatn, fékk mér smá kvöldmat -bara svona til að friða garnagaulið. Og ég er að segja ykkur árangurinn lætur ekki á sér standa, kílóin bara hrynja af. Að auki fær maður ristilhreinsun og svoleiðis í kaupbæti, meina halló.... til hvers að vera borga rándýrar ferðir til Póllands í DETOX þegar þetta er hægt heima, ókeypis! Ég sver það sko... afhverju datt mér þetta ekki fyrr í hug.