mánudagur, nóvember 05, 2007

Sitt lítið af hverju

Oh....
Hef frá alveg helling að segja, en veit bara ekki alveg hvar skal byrja.
Er búin að gera alveg fullt fullt.
Fara 2x í afmæli í vikunni, fara í saumó, fara gott út að borða, fara á ball, fara 2x á NýDönsk í vikunni (já tvisvar). Reyndar voru sumir af þessum atburðum á sama tíma, en hva það er bara gaman þegar maður hefur nóg að gera í social lífinu.

Afmæli/NýDönsk #1. Við Hafdís skelltum okkur í tvítugsafmæli á mánudagskvöldið. Ný Dösk var að fagna 20 ára spilerí afmæli sínu með tónleikum í Borgarleikhúsinu. "Grúppíurnar" við, komum okkur vel fyrir alveg upp við svið, annar bekkur fyrir miðju svo það lá við að manni fyndist maður vera á einkatónleikum. Voru þetta alveg stórskemmtilegir tónleikar og góðir að auki. Verð nú alveg að viðurkenna að ég hef ekki verið að hlusta neitt mikið á þá svona í gegnum tíðina (var meiri Sálar manneskja) en á einhvern hátt snerta sum lögin hjá þeim einhverja strengi, veit reyndar ekki alveg af hverju soldið skrítin tilfinning... eníhú...

Afmæli #2/saumó. Hjördís átti svo "tuttuguogeins" árs afmæli í vikunni (magnað hvað við eldumst ekki neitt vinkonuhópurinn). S ló hún því bara saman í eitt og var með afmælisveislu og saumó. Alltaf gott að eiga kvöldstund með stelpunum og spalla og slúðra og að ég tali nú ekki um að borða eitthvað gott :)

Glamúrdinner/ball/NýDönsk #2. Var boðin í glamúrdinner gleðikvenna á laugardaginn og fengum við gott að borða á Sjávarkjallaranum. Borðaði fullt af framandi mat (a.m.k. fyrir mig) sem ég hef aldrei smakkað áður og bragðaðist mjög vel. Tel ég það bara vera ágætis afrek fyrir gikkinn mig að prófa eitthvað svona nýtt. Þegar við vorum búinar að borða okkur saddar, hlæja og hafa það skemmtilegt trítluðum við yfir á dansiball á Nasa. Þar var NýDönsk að spila -en ekki hvað, það mætti halda að ég væri orðin e-r súper aðdáandi. En ég var þó voða stillt og prúð á dansiballinu. Strákarnir sem voru á ballinu sáu um alla grúppíustæla þar sem þeir tróðust fremst við sviðið, eitthvað sem maður sér nú ekki á hverjum degi. Reyndar var bara fullt af karlmönnum þarna á ballinu, sem var svosem ekkert leiðinlegt í sjálfu sér, en samt það margir að maður tók vel eftir því. Síðan voru líka nokkrir íslenskir "celebs" að djamma þarna líka. Nasa var greinilega the place to be á laugardaginn.

Þessi vika virðist svo ætla verða eitthvað rólegri en sú síðasta. Engin masterplön á dagskrá, sem er kannski ágætt. Var svo skemmtilega heppin að fá frk. hálsbólgu í heimsókn fyrir helgi þannig að röddin tók sér gott frí yfir helgina, eða eiginlega bara langa helgi því hún er ekki orðin neitt góð ennþá. Var því alveg rammfölsk alla helgina eins og unglinsstrákur í mútum, gaman að þvi! Fnuss....

Ætla svo að skella einni af desertnum sem við fengum á sjávarkjallaranum, ekkert smá flott og ógó gott :þ