Bara 5 dagar...
...og 9 tímar í jólin.
Oh.. hvað ég hlakka orðið til. Svefnpurkan ég hlakka þó mest til að fá að sofa út í fimm heila daga, zzzzz..... Það er svo gott að vera í fríi!
Er búin að pakka inn öllum jólagjöfunum, þ.e.a.s þeim sem búið er að kaupa en stefni á að ljúka jólasjopperíinu í dag. Svo nú er bara að fara að taka e-ð til í ruslinu hjá mér, taka eitt Laugarvegs rölt (ekki á Þorláksmessu samt) vonandi fer þetta veður að bjóða upp á einhverja útiveru, og svo er bara að bruna í sveitina, horfa á jólamyndirnar og hafa það gott.
Svo var litli frændi skírður í gær. Já já, barnið er loksins komið með nafn og var það Oddur Örn. Fallegt nafn á flottum strák. Nú þarf ég bara að venjast því að fara kalla hann nafninu sínu ekki "litli" eða "kútur" eða eitthvað í þá áttina :-) Veislan var voða fín, góð upphitun fyrir jólin og stóð systir mín sig alveg stórvel í bakstrinum og fór ég alveg belgsödd frá henni og klyfjuð tertum í nesti. Ég meina, ég gæti hafa orðið svöng á leiðinni í bæinn, hehe....