
Jólin komin með tilheyrandi áti og letilífi og mikið er ég búin að hafa það gott. Alltaf gott að komast í smá frí frá vinnunni og hversdagslífinu. Fór nú í vinnuna í dag, þar sem var frekar fámennt en góðmennt. Ekkert okkar var reyndar í stuði til þess að vinna og voru hlutirnir voða mikið gerðir með hangandi hendi, hugurinn er greinilega ennþá heima upp í sófa að horfa á imbann. En það er bara vinna á morgun og svo aftur frí. Yndislegt! Kannski að súkkulaðifráhvöfin séu eitthvað að segja til sín. Ég held svei mér þá að ég sé komin með konfekteitrun og machintosh sýkingu.... það sem ég er búin að borða af þessu, iss... Er líka alveg orðin sjúk í kók og annað gos, svelgi þessu í mig í lítratali. Var nú komin í temmilega gosneyslu núna í vetur en desember rústaði henni alveg, ég féll algjörlega. En það eru nú einu sinni jólin svo ég tel mig hafa ágætis afsökun. Næsta mál verður svo bara að mæta í ræktina eftir hátíðirnar og koma sér á réttan kjöl.