Jóla jóla jóla...
Bara vika í jólin!!!
Á sama tíma eftir viku verð ég væntanlega afvelta upp í sófa eftir allt átið, hamborgarhrygginn, ísinn og raða í mig gotteríi (konfekti og macintosh-i). Jólagjafirnar hafa verið opnaðar og stofan er ekkert nema jólapappír og skraut. Næs.
Er búin að vera jólast alveg fullt núna í desember. Kringlan og Smáralindin hafa verið heimsóttar meira en góðu hófi gegnir í jólagjafaleiðöngrum, er sísödd því það er alls staðar eitthvað gott á boðstólum en samt er nú alltaf pláss fyrir meira.
Annað sem ég er búin að afreka er...
...að baka nokkrar smákökur, læt mér duga 2 teg. í bili samt aldrei að vita nema við mamma skellum í nokkrar Sörur í viðbót, þær eru bara svo góðar.
...að fara á jólahlaðborð. Fór með vinnunni minni í Gullhamra, borðaði þar góóóðan mat var nú samt ekki nógu sátt með eftirréttinn, kaldur grjónagrautur með sultu a.k.a. ris a la mande er ekki eftirréttur á mínum mælikvarða.
...að skrifa jólakortin. Á bara eftir að fara með nokkur í póst og þá er ég done, eða held það a.m.k. samt gleymast nú alltaf einhver/einhverjir svo ég biðst bara fyrirfram afsökunnar á því.
...versla fullt fullt af jólagjöfum. Á bara "þessa einu" eftir sem virðist alltaf ætla verða eitthvað erfið, en það stendur allt til bóta hugmyndin er komin en það á bara eftir að fjárfesta í hlutnum. Svo er bara eftir að pakka þessu inn og skreyta :-)
...halda litlu jólin í vinnunni, fá pakka og borða kalkún í hádegismatin -ekki slæmt það.
...að hafa það þræl fínt.
(Ég virðist nú bara skrifa um át í þetta sinn, en svona er nú desember maður er bara sínartandi)
Á morgun er svo enn ein veislan. Litli frændi fær loksins nafn og er ég nú orðin nokkuð spennt að vita hvað blessað barnið á að heita. En meir um það síðar.

