Jólafrí :-)
Jólafríið langþráða alveg að bresta á, dásamlegt alveg hreint.
Nú verður aðal takmarkið að hafa það sem allra best. Ætla fara í sveitina á morgun og eyða jólunum þar, eins og ég geri alltaf. Næsta mál á dagskrá er að raða í sig gotteríi, fara út í göngutúra í átpásunum, heimsækja vini og vandamenn og njóta þess að vera til.
Tvær jólamyndir eru svo pottþétt á dagskránni.
National Lampoons Christmas Vacation - algjör snilld þessi mynd.
Love Actually - er kannski ekki alveg á sömu nótunum og hin myndin en er algjört æði.

