Korter...
... í áramótafríið!
Aldeilis löng og strembin vinnuvika að baki, alveg heilir tveir dagar. Veit ekki hvort ég meiki þá næstu sem er enn lengri, langir þrír dagar. Úff.... það sem er á mann lagt ;-)
Er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að tjútta eitthvað á gamlárs eða ekki. Er farin að hallast mikið að því að taka því bara rólega á mesta partý-flopp kvöldi ársins og fara bara á djammið í kvöld í staðinn. Svo ég þjófstarta bara áramótunum og fæ mér bubblí og hvítt í kvöld. Verst bara hvað það er ógeðslega kalt úti, pils eða kjólar eru alveg out, nema ég verði náttúrulega bara í föðurlandinu innan undir, eðal pæja alveg. Það gæti nú verið flott.
