mánudagur, desember 17, 2007

Munið þið eftir þessum ?


Alvin og íkornarnir (eins og ég man eftir þeim)

Þessir þættir voru sko einir af mínum uppáhalds þegar ég var yngri. Man nú samt ekkert mikið eftir þeim þannig séð, en mér fannst þættirnir skemmtilegir. Fór í dag með frænkur mínar í bíó á nýju myndina með þeim. Þeir hafa nú breyst töluvert frá því síðast, eru ekki lengur eins "teiknimyndalegir" og eru miklu meira "today" í útliti, en skemmtilegir engu að síður. Gat alveg hlegið að nokkrum atriðum í myndinni og svo eru þeir bara svo krúttlegir. Hver vill ekki hafa þrjá syngjandi íkorna heima hjá sér.

Nýja útlitið -örlítið breyttir