þriðjudagur, janúar 01, 2008

Gleðilegt nýtt ár 2008

... og takk fyrir árið 2007!

Nýjir tímar framundan sem verða vonandi fullir af ævintýrum og skemmtilegheitum. Árið 2007 var gott ár og urðu nokkrar stórar og minni breytingar á líf manns á árinu, eins og öðrum árum og hugsa ég bara frekar sátt til baka.

Það verður gaman að sjá hvað nýja árið ber í skauti sér og tek ég bara á móti því með góðu hugarfari og þá er ég viss um að það verður gott.

Áramótaheitið verður það sama og fyrri ár, ég ætla ekki að byrja að reykja á árinu. :) Mér hefur tekist að halda það heit í gegnum árin, ótrúlegt en satt, svo ég breyti ekkert út af vananum. Samt eru nokkur heit sem blunda í kollinum á manni, en þau eiga bara heima þar en ekki á http://www.com/.