föstudagur, febrúar 29, 2008

Þessa vikuna...

...var vinavika í vinnunni. Fann þetta þegar ég var að leita að einhverju sniðugu fyrir leynivininn minn og mátti til með að skella þessu inn.
Svo er árshátíðin á morgun. Morgundagurinn verður því undirlagður að gera sig sæta og hafa það skemmtilegt og gott. Sunnudagurinn algjörlega óplanaður, honum verður líklegast eytt í sófanum við imbann.
Hlakka til :)