Mánudagur í dag. Dæmigerður mánudagur. Erfitt að vakna og koma sér af stað í vinnuna, þreytt, slæmur hárdagur og ljótan gerði vart við sig. Elska svona daga, hvernig er annað hægt ?
Held ég hafi líka verið með hálfgerða sykurþynnku eftir helgina. Lá í sætindum og öðru góðgæti. Borðaði djúpsteiktan mat, drakk fullt af gosi og hreyfði mig ekki neitt, heilsan greinilega ekki í fyrirrúmi. (Gæti kannski verið ástæðan fyrir ljótunni í dag). En stundum verður maður nú bara að gera sér dagamun, þó það geti nú alveg farið aðeins út í öfgar. Kíkti í heimsókn til sys. á lau. og þá var nátturulega alveg skylda að hafa eitthvað gott að maula á meðan við skiptumst á kjaftasögum. Þess á milli knúsaði ég uppáhaldsfrænda og reyndi að standa mig í frænkuhlutverkinu, bara skemmtilegt.
Önnur ástæða sykurþynnkunnar í dag var svo ein afmælisveisla. Ein daman hér á heimilinu var 10 ára í dag og þá var auðvitað haldið upp á það í faðmi stórfjölskyldunnar, ljómandi gott og gaman :)
Held ég sjái mig því tilneydda að vera dugleg að mæta í ræktina það sem eftir lifir vikunnar. Árshátíðin er á næsta leyti og því ekki seinna vænna en að taka almennilega á því á lokasprettinum fyrir hana svo ég geti nú verið smá pæja. Framundan er því púl púl púl!
Minn uppáhalds :)
