fimmtudagur, apríl 24, 2008

Það er komið sumar...


...eða að minnsta kosti á dagatalinu. Ekkert voðalega vorlegt úti í dag, ský, rok og frekar kuldalegt að sjá. Samt læt ég nú veðrið ekkert á mig fá, ætla kíkja út í labbitúr og svo bíður Sumardagsins Fyrsta "heitu potta ferð". Í kvöld ætla ég svo að hitta Buddettes í mat og kjaftagang svo þetta ætlar bara að verða fínasti frídagur!

Gleðilegt sumar gott fólk og takk fyrir veturinn!