miðvikudagur, apríl 16, 2008

...og lífið heldur áfram

Eftir erfiða daga í síðustu viku finnur maður hversu mikilvægir vinirnir og fjölskyldan eru manni. Ég væri ekkert án þeirra. Að geta hringt eða hitt einhvern og sagt það sem manni liggur á hjarta eða hvernig manni líður er ómetanlegt. Að fá faðmlag, klapp á bakið eða kveðju gefur manni ótrúlega mikið og maður finnur hvað það er mikið af góðu fólki í kringum mann. Takk fyrir þið öll!

Síðasta helgi var mjög góð, akkúrat sem maður þurfti eftir erfiða viku. Eftir púl í ræktinni eftir vinnu á föstudag var glápt á þessa fínu stelpumynd (The Wedding date) með nokkrum stelpum, formúla sem klikkar ekki. Alveg fékk maður aulahroll yfir nokkrum atriðunum í myndinni... stelpur í alvöru, látum við alltaf eins og asnar þegar við erum að reyna fá athygli einhvers karlmanns? Ég vona ekki og ef ég hef einhvern tímann verið eins og gellan í myndinni þá held ég að ég ætti að fara hugsa min gang, ó mæ god!

Laugardagurinn fór svo í almenna leti, kíkti aðeins í heitupottana, eða kannski öllu heldur barnalaugina og flatmagaði í sólinni..... mmm... hvað það var notalegt. Er sko alveg farin að hlakka til sumarsins, grilla, liggja í sólinni, fara út í fjallatrítl, hjólatúra og fleira skemmtilegt. Eftir að hafa legið aðeins í bleyti var svo kíkt í keilu + út að borða + bjórkvöld með vinnunni. Ég lét meistarataktana alveg eiga sig í keilunni, vildi ekkert vera að gera lítið úr vinnufélögunum... öhömm... en var samt alveg asskoti dugleg við að hitta bara 9 keilur (þær eru sko 10 sem þarf að fella) það var alltaf þessi EINA sem varð eftir, en ég náði nú þó einni fellu svo ég var sátt. Kvöldið heppnaðist annars rosa vel. Mikið hlegið og mikið drukkið. (Mánudagurinn var nú líka soldið skemmtilegur þegar maður fékk að heyra af öllu slúðrinu, hehehehe....) Ég var nú samt í rólegri kantinum og var bara komin heim fyrir miðnætti, sátt við skemmtilegt kvöld!

Fyrst ég vaknaði svo eiturhress á sunnudag ákvað ég bara að drífa mig í smá bíltúr austur fyrir fjall í heimsókn til sys. Ætlaði nú ekki að láta smá snjóföl aftra ferðinni neitt og sleppti því bara að fara í minipilsinu og pinnahælunum, svona in case ef ég myndi festa mig.... Þegar austar dró varð snjórinn alltaf meiri og meiri.... og þegar ég var komin á áfangastað var ábyggilega 20-30 cm nýfallinn snjór! Halló.... það er apríl! Átti ég nú bara í fullu fangi við að festa ekki kaggann í heimreiðinni hjá sys. Eftir að hafa klofað snjóinn inn var svo farið að knúsa litla frænda, hann var líka svona glaður að sjá mig, brosti og hló þegar ég mætti. Krúttið. Síðan lágum við systurnar á beit allan daginn. Fengum okkur vöfflur með ís og kakó, af því það var orðið svo vetrarlegt úti, nammi og svo líka þessa gómsætu súpu sem yours truly framreiddi í kvöldmat. Fullkominn dagur alveg hreint, svona eiga sunnudagar að vera.

Ég verð svo að enda þetta á smá montmyndum af krúttinu mínu :)




Duglegur í göngugrindinni

mmm.... matur