þriðjudagur, apríl 29, 2008

That's life

Sumarbústaðarferð saumó var um helgina. Sérdeilis prýðileg ferð, að vísu fámenn en engu að síður góðmenn. Eins og við erum nú venjulega ekkert voðalega uppteknar ( og ekkert rosa margar) þá var þetta eina helgin sem kom til greina, og því miður komast ekki alltaf allir með. Að vísu er þetta svo öflugur saumaklúbbur að hann teygjir anga sína út fyrir landsteinana svo það var nú vel skiljanlegt að "útlandadeild" klúbbsins sá sér ekki fært að mæta, en það stendur nú allt til bóta bráðlega svo við verðum örugglega fleiri í næstu ferð, tja svo lengi sem það flýja ekki fleiri klakann.

Helgin einkenndist af áti og meira áti, pottaferðum, góðum drykkjum, 100% eðal stelpuspjalli (sem hefði fengið mestu hörkutól til að kafroðna), hlátri, svefni og leti, semsagt ljúfu lífi. Sólinni var pakkað með og var hún sko aldeilis ekki að svíkja okkur. Meina hvað er betra að liggja í pottinum í sólinni í góða veðrinu (með vörn á nebbanum auðvitað svo það fari nú ekki nein að brenna eins og árið áður) með sólgleraugun á nefinu og með ískalda blush sér við hlið, nú eða bjór fyrir þá sem það kjósa. Það er allavega ekki margt sem toppar það :)

Takk stelpur fyrir skemmtilega helgi!

- "Heyrðu það er einn gullfiskur með okkur hérna"
- "HAA....!!! eruð þið með gullfisk!?!?!" :)



Þetta er lífið :) Af tillitssemi ætla ég nú ekki að fara setja neinar sundbolamyndir af klúbbmeðlimum á veraldarvefinn, slíkt væri ekki fallega gert að þeim óspurðum. Aðrar myndir sem voru teknar eru ekki til opinberrar birtingar, svo þið verðið bara að láta þessar tær og vínglas duga, þær segja allt sem segja þarf.