Vorið er komið...
....og grundirnar gróa
gilin og lækirnir fossa af brún,
syngur í runni, og senn kemur lóa,
svanur á tjarnir og þröstur í tún.
Nú tekur hýrna um hólma og sker,
hreiðra sig blikinn og æðurin fer,
hæðirnar brosa og hlíðarnar dala,
hóar þar smali og rekur á ból,
lömbin sér una um blómgaða bala,
börnin sér leika að skeljum á hól.
- Alltaf dettur mér í hug Dalalíf þegar ég heyri þetta lag. Siggi Sigurjóns að girða túnin og moka skít.... "I love it"
Ég held, eða vona allavega, að vorið sé komið. Snjórinn eigi ekki eftir að láta sjá sig meir fyrr en í október og nú sé góða veðrið komið. Vorboðarnir eru allavega farnir að láta sjá sig. Hér í borginni eru það golfararnir sem sniglast um golfvellinna og mótorhjólafólkið sem komið á ról og nú eru hjól á hverju götuhorni. Í sveitinni eru vorboðarnir aðrir og af allt öðrum toga. Þar er það kvakið í álftunum og gæsunum sem vappa um í drullunni í kartöflugörðunum og svo auðvitað allir farfuglarnir. Annað sem þýðir að það er komið vor er þegar farið er að "setja í kassa" (svo le potatoes fari að spíra). Rúllaði einmitt í sveitina um helgina burt frá golfurunum og mótorhjólunum og þá var allt fullt af mórauðum álftum og familían út á plani að setja í kassa. Svo það hlýtur að vera komið vor :)
Svo er bara stutt vinnuvika framundan. Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn (svona fyrir ykkur sem búa í útlöndum og voru kannski búin að gleyma því ;) ) og svo verður brunað í bústað strax eftir vinnu á föstudag. Pottur, góður matur, afslappelsi, góðir drykkir, stelpumyndir, spjall og fleira skemmtilegt! Ég hlakka sko til :)

Hér er einn af útsæðiskössunum sem við systur tókum að okkur að merkja fyrir c.a. tveim áratugum síðan. Vorum ekki alveg að átta okkur á því að merkingin yrði á hvolfi þegar kassinn færi í notkun, en hvað um það hann er allavega vel merktur.