Feeling hot hot hot...
Brakandi blíða og hiti í dag. Spánarveður á Suðurlandinu og ég í Reykjavíkinni í vinnunni. Hefði nú aldeilis verið til í að vera í fríi í dag, en þessir fáu frídagar sem ég á verða nýttir síðar meir og þá kannski í eitthvað annað en sólböð og sundlaugarferðir (sem ég vildi nú gjarnan). Sá lúxus bíður bara þangað til klukkan er orðin c.a. fjögur á virkum dögum og um helgar. Ætlaði nú samt að vera voða góð við sjálfa mig og hætta snemma í vinnunni í dag og fara út og njóta veðursins. Eeeen viti menn, þegar ég er við það að ganga frá og ætla koma mér út fór allt í skrall #%$%/& og blíðan var sett á hold í smá tíma. En það varð nú enginn stór skaði af og náði ég einni prýðilegri sundpottaferð með Önnu þar sem við sleiktum síðdegis sólina, og mikið var það næs. Me like it! Pant fá aftur svona gott veður :)
Versló helgin með öllu óráðin. Held það stefni nú bara í rólegheita helgi og er ég bara þrælsátt við það. Samt aldrei að vita hvað maður lætur sér detta í hug og framkvæma. Þjóðhátíðarpúkinn sem lét svo ræklega á sér kræla í byrjun mánaðar hefur látið sig hverfa, (það þurfti svosem ekki mikið til - eitt hörkutjútt í downtown RVK og "dagurinn-eftir" sem því fylgir). Samt alveg ótrúlegt hvað hún togar alltaf í mann, þessi Þjóðhátíð í Eyjum og kitla öll þessi gömlu Þjóðhátíðarlög sem eru spiluð í útvarpinu sko aldeilis taugarnar, en ég ætla bara láta minningarnar duga þetta árið (þótt púkinn eigi eflaust eftir að banka uppá þegar nær dregur helgi) Good times - good times!