þriðjudagur, júlí 08, 2008

Hjóli spóli...

Við Anna ákváðum að vera duglegar í gær og hjóla loksins í vinnuna. Uppsöfnunin í kaloríubankanum gengur heldur betur vel (þær geymast á svo góðum vöxtum :-) )svo það var löngu komin tími á einhverja úttekt. Það er búið að vera á dagskránni hjá okkur að hjóla í vinnuna frá því að Anna mætti á klakann í byrjun júní svo það var nú alveg kominn tími á að standa við stóru orðin og fara. Fram að þessu höfum við haft alls konar afsakanir fyrir því að hjóla ekki, eins og rok, fjallatrítl og vindlaus dekk, eitthvað sem flokkast víst undir almenna leti. Síðast hjólaði ég fyrir rúmum mánuði síðan eftir að ég hafði skráð mig í lið með vinnufélögunum í hjólað í vinnuna, og þá var nú betra að standa sig og lagði ég nokkra km að baki í þeirri lotu, að því loknu tók við góð pása.

En við tókum þetta með trukki í gær. Fórum í dýrindis veðri og þegar komið var í vinnu var búið að gleypa og fá í augun nokkrar flugur sem voru eitthvað að þvælast fyrir okkur, fara framhjá gæsum með heeelling af ungum, rúlla yfir fullt af skít, svitna helling og vonandi brenna nokkrum kaloríum. Mikið var þetta hressandi og ég skil ekkert í mér að vera búin að drolla með þetta að byrja aftur. Að vísu er þetta heldur löng leið, Grafarvogur - Hafnarfjörður er enginn skottúr, og var þreytan algjörlega við völdin þegar heim var komið. En þetta verður vel þess virði ef gallabuxurnar passa eitthvað betur í lok sumars. Svo nú er bara að koma sér í gírinn, spara smá krónur í bensín og komast í kjólinn fyrir jólin :)