föstudagur, október 17, 2008

On the edge...

Stjörnuspá dagsins:
Þú leyfir villtu hliðinni að koma í ljós. Er hægt að lifa á blábrúninni og líka vera í góðri vinnu? Þú reynir að komast með því að skemmta þér ærlega.

Skemmta mér ærlega ??? Ekki er það á dagskrá helgarinnar. Upphaflega átti þessi helgi að einkennast af 100% lærdómi, taka smá skurk í 'essu og ná upp einhverju af þessu slugsi í mér. En við þetta hefur bæst boð í afmælisveislur, og ekki bara eina heldur tvær á laugardag og sunnudag. Það er nú skemmtilegt :) Svo í stað þess að sitja hugsandi yfir bókunum þá á ég eftir að sitja og troða mig út af góðgæti og helgin mun örugglega einkennast af c.a. 30% lærdómi. En það verður bara bætt upp í næstu viku. Er þa' iggi bara!